Upphafsmenn að stofnun þriðju stúkunnar á Íslandi má segja að hafi verið þrír bræður í Fjölni sem búsettir voru á Hveragerðissvæðinu.
Meginmarkmið þeirra var að stofna stúku á Hveragerðissvæðinu og hafa þannig stúku í heimabyggð. En líklega má segja að þeir hafi einnig haft það að undirmarkmiði að þurfa ekki að mæta á alla fundi til Reykjavíkur, enda gátu veður og færð yfir heiðina verið misjöfn.
Fyrsta skrefið í að stofna stúku á nýju svæði er að stofna Drúídfélag. Þetta skref var tekið þann 19. október 2000 þegar Drúídfélagið Merlin var stofnað. Stjórn var valin og sett í embætti og embættismenn frá stjórn Reglunnar vígðu lund í einu af bakherbergjum Hótels Ljósbrár við Austurmörk í Hveragerði. Síðar færðust fundir félagsins yfir á Hótel Örk.

Frá upphafi myndaðist sterkur og samhentur hópur bræðra í Merlin og segja má að samheldni bræðranna og styrkur bróðurkeðjunnar hafi gert útslagið um hversu hratt stofnun félagsins og stúkunnar gekk fyrir sig. Afrakstur tveggja ára undirbúnings bar svo ávöxt þann 30. nóvember 2002 þegar stúkan Geysir var stofnuð en stofnfélagar voru ellefu talsins. Nafn stúkunnar Geysir vísar til hinna náttúrulegu frumkrafta.
Stofnfundurinn var haldinn í lundi félagsins á Hótel Örk að viðstöddum fjölda bræðra úr Fjölni og Janusi, ásamt bræðrum og embættismönnum frá Noregi og Danmörku. Stjórnarmenn í Fjölni settu fundinn og stýrðu honum þar til Ríkisstórembættismenn tóku fundinn yfir og sáu á formlegan hátt um stofnun Geysis, afhentu merki stúkunnar og settu embættismenn hennar í embætti. Eðal Erk í Fjölni á þessum tímamótum var br. Atli Ingvarsson.
Á haustdögum árið 2017 flutti stúkan í Þarabakkann og hefur verið þar síðan.
30. nóvember 2002
Þarabakki 3, 109 Reykjavík
Þriðjudagar, aðra hvora viku
Geysir er stúka nr. 046
Drúídstúkan Fjölnir
Stórstúkan Ísafold
Hringar/Noregur
Það er 31 bróðir í Geysi (ágúst 2026)
17% virkra bræðra eru í Geysi


Þarabakka 3, 3ju hæð, 109 Reykjavík
Opið fimmtudaga frá kl. 13:00-15:00