Drúídar á Íslandi
Hin forna Drúídregla var stofnuð í Englandi 1781 sem lokaður félagsskapur. Saga Reglunnar er sú að hún var sett á laggirnar af Henry Hurle, byggingameistara og landmælingamanni í London, á fundi á kránni Kings Arms í Poland Street í London.
Með tímanum hefur Reglunni vaxið ásmegin og er nú að finna í mögum löndum víðsvegar um heiminn, s.s. í Sviss, Nýja Sjálandi, Ástralíu, Englandi, Þýskalandi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi.
Fyrsta drúídstúkan í Noregi, Nordstjernen í Osló, var stofnuð 1935. Í dag eru rúmlega 50 stúkur í Noregi, og starf reglunnar fær stöðugt meiri undirtektir.
 
Drúídreglan barst til Íslands frá Noregi 1996 en þá var stúkan Janus stofnuð í Reykjavík. Frá upphafi hefur verið mikill kraftur í uppbyggingu Reglunnar hér á landi og því leið ekki langur tími frá landnámi Reglunnar að önnur stúka var stofnuð 1998 í Reykjavík, stúkan Fjölnir. Þriðja stúkan var stofnuð í Hveragerði árið 2002, stúkan Geysir. Fjórða stúkan var stofnuð í Reykjanesbæ þann 7. september 2013, stúkan Gaia. sjá nánari upplýsingar um stúkuna Gaia á síðunni "New Lodge In Iceland".
Stórstúkan Ísafold var stofnuð árið 2008.
Markmið Reglunnar
Aðalmarkmið Reglunnar er að stuðla að auknum þroska einstaklingsins og vinna að vináttu manna um allan heim, vináttu byggða á réttlæti, velvild og bróðurkærleika. Þessu markmiði leitast Reglan við að ná með því að upplýsa félaga sína um siðfræðileg og andleg vermæti.
Reglan er meira en bara venjulegt félagslíf. Megin atriðið er að vinna með hugsjónir og markmið Reglunnar, vinna að því að rækta sjálfan sig til að verða betri einstaklingur og vinna að því að tileinka sér þekkingu sem hefur varanlegt gildi. Þetta gerist einkum með bróðurlegum samskiptum félaganna. Reglan er hlutlaus gagnvart stjórnmálum og trúarbrögðum. Félagar eru teknir í Regluna án tillits til stjórnmála- eða trúarskoðana.
Stúkurnar halda fundi hálfsmánaðarlega frá september til maí. Sá er óskar eftir félagsaðild þarf að vera undir það búinn að því fylgi viss kostnaður. sjá nánar á síðunni "Stúkustarfið"
Reykjavík
Stúkurnar Janus og Fjölnir starfa í Reykjavík og fer reglustarfið fram í eigin húsnæði stúknanna að Síðumúla 1.

Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í reglustarfinu geta sent fyrirspurn til stúknanna með tölvupósti:
Ath! setja þarf @ táknið í stað [hjá] í netfangið.
Stúkan Janus - janus[hjá]fgdo.no
Stúkan Fjölnir - fjolnir[hjá]fgdo.no
Suðurland
Stúkan Geysir starfar á Suðurlandi og fer reglustarfið fram í húsnæði stúkunnar að Básnum, Efstalandi í Ölfusi.

Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í reglustarfinu geta sent fyrirspurn til stúkunnar með tölvupósti:
Ath! setja þarf @ táknið í stað [hjá] í netfangið.
Stúkan Geysir - geysir[hjá]fgdo.no
Reykjanes
Stúkan Gaia starfar á Reykjanesi og fer reglustarfið fram í eigin húsnæði stúkunnar að Flugvallarbraut 736 Ásbrú, Reykjanesbæ.

Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í reglustarfinu geta sent fyrirspurn til stúkunnar með tölvupósti:
Ath! setja þarf @ táknið í stað [hjá] í netfangið.
Stúkan Gaia - gaia[hjá]fgdo.no
uppfært 20.9.2013 |